8.4.2013 | 22:11
52% í skatta og gjöld
Síðustu ár hafa ráðstöfunartekjur meðalfjölskyldu lækkað um eina milljón króna vegna ofur álagningar og skatta. Heimilin ráða ekki við þetta. Það sama á við í atvinnulífinu. Ljóst er að skattahækkanir á fjölskyldur og fyrirtæki hafa ekki skilað því sem til var ætlast og algjörlega nauðsynlegt er að snúa af þessari röngu braut. Hér er mynd sem ég leyfi mér að deila en ungir sjálfstæðismenn tóku þetta saman úr gögnum frá Hagstofu Íslands og Fjármálaeftirlitinu.
Myndin sýnir í hvað tekjur heimilanna fara að meðaltali og hvað það er sem er að sliga fólk - skattar og opinber gjöld eru 52% - Úff!
Athugasemdir
hárrétt hjá þér - en útskýrðu fyrir mig/okkur nánar hvernig flokkurinn ætlar að lækka skatta. sérstaklega langar mig til að heyra meira um breytingar á tekjuskatti - t.d vegna þessara 3 þrepa sem við erum með núna
Rafn Guðmundsson, 8.4.2013 kl. 23:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.