Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009
16.6.2009 | 17:43
Menning er mannrækt
Í dag var samþykkt í borgarstjórn endurskoðuð menningarstefna Reykjavíkurborgar til ársins 2012. Verkefnið hefur verið gífurlega viðamikið og meira en ár er síðan framkvæmd hófst en árið 2007 fór verkefnið inn á starfsáætlun menningar og ferðamálaráðs fyrir árið 2008.
Framkvæmd verkefnisins einkenndist af miklu samráði og eindreginn vilji var til samráðs við almenning. Við endurskoðun stefnunnar var leitað samráðs við ýmsa aðila. Haldnir voru 2 stærri samráðsfundir snemma vors 2008, þar sem fjölbreyttum hópi fólks var boðið að taka þátt í hugarflugsvinnu með framtíðarsýn menningarlífs Reykjavíkur í huga og í framhaldi af því störfuðu nokkrir hópar að hugmyndavinnunni.
Þegar drög að markmiðum og leiðum stefnunnar höfðu verið mótuð í lok nóvember 2008, voru þau send til ýmissa hagsmunasamtaka og menningarstofnana í Reykjavík, hverfisráða, íbúasamtaka, ásamt annarra sviða Reykjavíkurborgar og kallað eftir athugasemdum. Einnig voru drögin birt á vef Reykjavíkurborgar og almenningur hvattur til að tjá sig um drögin þar.
En víkjum þá að innihaldi stefnunnar. Hvað hefur breyst frá fyrri stefnumörkun? Nefna má helstu atriðin, í fyrsta lagi er búið að gera stefnuna mun aðgengilegri, hún er meira útskýrandi en áður var sem er verulega til bóta þar sem fyrri stefnumörkum var nokkuð knöpp.
Í öðru lagi er mikil viðurkenning falin í stefnunni, sem lýtur að því að viðurkennt er að menningarlífið í borginni sé mikilvægur hluti efnahags- og atvinnulífs borgarinnar og bæta þurfi úr sýn á hagræn áhrif menningar á samfélagið. Menning er það afl sem eykur lífsgæði. Í menningunni felast auðævi þjóðarinnar ekki síður en í öðrum atvinnugreinum.
Í þriðja lagi er stefnan að ákveðnu leiti afskiptasöm og fjallar um aukið samráð í borginni um hvernig hægt er að vinna að verkefnum í samráði og samstarfi milli sviða, ráða, stofnana og annarra aðila.
Yfirskrift menningarstefnunnar er Menning er mannrækt og leiðarljós hennar er; Reykjavík eflist sem höfuðborg menningar í landinu. Sjálfsmynd borgarinnar byggi á menningararfi, frjórri hugsun og frumkvæði. Menningarlífið einkennist af fjölbreytni og virkri þátttöku íbúa og gesta.
Stefnan skiptist í 8 eftirfarandi kafla:
- Auðlind sem byggt er á til framtíðar
- Börn og menningaruppeldi
- Menningarstofnanir Reykjavíkurborgar
- Listir
- Samkennd og jafnræði
- Umhverfi og saga
- Alþjóðleg menningarborg
- Þáttur menningar í stjórnkerfi Reykjavíkurborgar
Hvet ykkur til að kynna ykkur menningarstefnuna skjalið er hér.
Bloggar | Breytt 18.6.2009 kl. 14:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)