Borgarbörn í góðum höndum

Á miðvikudaginn var kynnt aðgerðaráætlun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Frálslyndra í Reykjavíkurborg til næstu fjögurra ára. Áætlunin lýsir því hvernig meirihlutinn sér fyrir sér að byggja upp þjónustu við yngstu börnin í Reykjavík frá því að fæðingarorlofi lýkur.

Í meginatriðum má lýsa áherslunum svona:

  • Áframhaldandi uppbygging borgarrekinna skóla með fjölgun deilda og nýjum skólum
  • Fleiri nýir sjálfstætt starfandi leikskólar
  • Greiðslur til sjálfstætt starfandi skóla leiðréttar
  • Ungbarnaskólar hefja starfsemi
  • Dagforeldraþjónusta aukin og fjölbreyttari
  • Dagforeldrum fjölgað
  • Þjónustutrygging frá því fæðingarorlofi lýkur og þar til barn fær þjónustu
  • Rafræn innritun í leikskóla og upplýsingavefur um dagvistunarmöguleika

Og hvað vinnst svo með þessu? Með þessu móti teljum við okkur geta komið til móts við sem flesta. Á fjórum árum sjáum við að raunhæft er að telja að við getum sinnt öllum börnum í borginni, þangað til er ljóst að ekki verða nógu mörg úrræði í boði. Við viljum hjálpa þeim sem þurfa að hjálpa sér sjálfir, reyna á fjölbreytt og ólík úrræði, fjölga jafnframt úrræðum sem vel eru þekkt og rótgróin.  

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband