Þreyttar áætlanir og lævís leikur

Nú er komið vel inn í seinni hluta kjörtímabils meirihluta Samfylkingar, Pírata, Bjartrar framtíðar og Vinstri grænna í borginni. Flestum er orðið ljóst að lítið hefur áunnist.

Menntun á að vera algjört forgangsmál
Gott samfélag býr að góðu menntakerfi. Matið er einfalt. Gott menntakerfi er samanburðarhæft við menntakerfi annarra ríkja. Árangur íslenskra nemenda í lesskilningi og læsi á stærðfræði og náttúrufræði hefur hins vegar versnað síðastliðinn áratug og er verri en í okkar samanburðarlöndum. Um þetta er enginn ágreiningur. Því hefði mátt halda að helsta áhersla meirihluta borgarinnar yrði að líta á málið sem algjört forgangsmál og leggja allt á vogarskálarnar til að gera betur. Því miður blasir annað við.

Að skerða fjármagn til skólanna hefur verið helst á dagskrá meirihlutans. Skólastjórnendur hafa þurft að standa í karpi og mikilli baráttu við að fá skilning um að ekki sé hægt að ná meiri árangri með slíkum hætti. Hvergi hefur orðið vart við að skólafólk fái hvatningu til að vinna að breytingum til að mæta slökum árangri. Meirihlutinn hefur einnig staðið í vegi fyrir að upplýsingum um árangur verði miðlað á þann hátt til skólanna svo að þeir geti nota þær til að efla eigið starf.

Ljóst er að hér verður að gera betur. Vinna verður að því að fá fram breytingar í kennsluháttum og breytingum á aðbúnaði. Menntastofnanir verða fyrst og fremst að geta sinnt kennsluhlutverki sínu. Nauðsynlegt er að skýra línurnar og verja menntaþáttinn.

Velferðinni er ábótavant
Biðlistar eftir þjónustu eru einkenni Reykjavíkurborgar. Fötluðu fólki sem þörf hefur fyrir þjónustu vegna athafna daglegs lífs er vísað á biðlista. Árið 2017 getur slíkt ekki gengið upp, það vitum við öll. Það á að vera skylda þeirra sem stjórna borginni að forgangsraða betur í þágu þeirra sem minna mega sín.

Grunnþörfum eins og þessum ætti ekki að vera hægt að vísa á biðlista. Sérstaklega ekki ef ástæðan er sú að borgarkerfið getur ekki mannað í þjónustustörfin. Við blasir að skortur er á nauðsynlegri uppstokkun til að mæta þörfum og eðlilegum kröfum fatlaðra og aldraðra. Aldraðir og fatlaðir eiga að geta valið þjónustu á eigin forsendum í stað þess að vera þiggjendur fyrirfram ákveðinnar þjónustu. Viðurkenna þarf ákveðna þjónustuþarfir og forgangsraða svo í fjármálum borgarinnar svo að þeim megi mæta. Það er ekki nóg að bjóða upp á heimsendan mat en sleppa þjónustunni ef vitað er að viðkomandi þarf aðstoð við að matast.

Fyrir liggur að þjónustan verður að taka stakkaskiptum á næstu árum. Væri minnsti vilji fyrir hendi væri borgarkerfið á góðri leið með að innleiða slíkar breytingar þessa dagana. Meirihlutinn í Reykjavík stendur í vegi fyrir framþróun. Ekki tekst að fjármagna sjálfsögð verkefni og áhersla á að breyta stöðnuðum aðferðum til að koma betur til móts við þá sem þurfa á þjónustu að halda er ekki til staðar.

Grunnþjónusta og gjöld
Í stað þess að forgangsraða er leitað enn dýpra í vasa borgarbúa. Útsvarið í Reykjavík er í botni, það hæsta samkvæmt lögum. Tekjur borgarbúa hækka og tekjur borgarsjóðs hækka í hlutfalli af því. Fasteignagjöld hafa hækkað gríðarlega, sérstaklega á borgarbúa. Orkugjöldin hafa margfaldast á undanförnum árum og meirihluti borgarstjórnar þakkar Planinu, finnst í góðu lagi að taka út arðinn en hvergi minnst á borgarbúa sem tóku á sig gríðarlegar hækkanir. Nei, þeir skulu áfram borga sín gjöld. Sorphirðan hækkar gjöld en dregur úr hirðutíðni. Engin ástæða er talin til að bjóða þjónustuna út til að draga úr útgjöldum eins og önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu gera. Samgöngukerfið er í ólestri, ásýnd borgarinnar er farin að líkjast vanþróuðu samfélagi. Húsnæðisvandinn gríðarlegur, viðvarandi og ýtir undir fátækt og á honum axlar meirihlutinn enga ábyrgð.

Borgarstjóri er lævís í kynningarmálum. Hann svarar ekki gagnrýni heldur býr til nýjar áætlanir og kynnir þær með miklum látum þegar að fyrri áætlanir hafi ekki staðist. En hingað og ekki lengra. Borgarbúar hafa áttað sig þessum þreytta og síendurtekna talnaleik. Nú þarf að hvíla flugeldasýningarnar og hætta að hafa borgarbúa að fíflum.

 

Grein birtist í Morgunblaðinu 22. apríl 2017


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbeinn Pálsson

vandinn er að þið eruð ekki að gera neitt að viti. Þið höfðuð ekki vit á að stoppa Samræðustjórnmálavitleysu hönnu birnu sem sveik allt og alla í hlutum eins og flugvallarmálinu.

Því miður þarf betra fólk með klára sýn á hvað þarf að gera. Davíð Oddson var sá síðasti sem hafði sýn og hægt er að kalla Mann.

Þeir sem á eftir komu, eru bara fávísir/ar Drengir/Stúlkur og þeir reyndust engan vegin vaxnir hlutverkinu.

Því miður fannst engin Auður Auðuns hjá kvenfólkinu.

Framsókn og Flugvallarvinir að ég tali nú ekki um ef Sigmundur Davíð, maður sem hefur framtíðarsýn, kemst sjálfsagt næst því sem margir munu kjósa, ef fólk nennir á annað borð á kjörstað, horfandi á það fólk sem er á lista og ekki líklegt til að breyta neinu nema þá til hins verra.

ég nenni ekki að rakka niður Bergþóruson og Blöndal að ógleymdum blessuðum holu Hjálmarnum, sem lukkast oft að gera góða hluti slæma hvenær sem tækifæri gefst.

Ef þið hefðuð staðið í lappirnar væri Grensásvegurinn nú flott fjögurra akreina gata með flottum reiðhjólastígum.

Þið gerðuð ekkert til að leiðrétta þessa hörmung!

Kolbeinn Pálsson, 22.4.2017 kl. 20:05

2 Smámynd: Áslaug Friðriksdóttir

Get ekki tekið undir þetta. Margt gott gerðist í tíð Hönnu Birnu þegar hún var borgarstjóri sem sýndi hvað í henni bjó þegar hrunið skall á. Aldrei hefur verið hagrætt með jafnmiklum árangri og þá. Samræðustjórnmálatilraunin skilaði þá nokkrum árangri enda gríðarlega miklir óvissutímar en sú tilraun gekk ekki upp til lengdar. Enda jafnvel engin þörf á þeim til lengdar og þau ekki stunduð lengur.  

Ég held að ekki hafi verið hægt að mótmæla meira en við gerðum hvað varðar Grensásveginn. En við erum í minnihluta og sama þó að við höfum staðið í lappirnar og meira en það, fengum við þessu ekki ráðið. Það er einfaldlega meinið. 

Áslaug Friðriksdóttir, 22.4.2017 kl. 20:35

3 Smámynd: Kolbeinn Pálsson

Vandinn fyrir ykkur er að ég og margir sem ég hef talað við sjáum ykkur ekki vera að gera neitt sem skiptir máli!

Sundabrautin strax af stað og á hagkvæmasta stað, svo sú framkvæmd verði að veruleika!

Sé ykkur ekki vera fólk til að setja fram skýra sýn og standa að öllu sem hægt er að gera,td kynningum, götumótmælum oþh. til að framfylgja stefnunni og sýna að ykkur er alvara!

Sé ykkur ekki gera ykkar ýtrasta, td. leggjast í götumótmæli til að krefjast tafarlausrar uppbyggingar á Reykjarvíkurflugvelli, tafarlausrar uppbyggingar samgöngumiðstöðvar og gera allt sem mögulegt er svo REK og KEF geti unnið sem best saman, öllu landinu til hagsældar!

Þið gerið ekkert til að svona þjóðþrifamál komist áfram!

Lóðir fyrir íbúðarhús á kostnaðarverði fyrir almenning! Þið gerið ekkert. ég minnist þess þegar síðasti MAÐURINN í flokknum tók við Reykjavík!

Lóðir fyrir alla, ekkert brask lengur við lýði.

Eftir Davíð,breytti Ingibjörg öllu sem hún gat, strax á verri veg (td. skeiðarvogur), og ekki reynt að lagfæra ruglið!

Dæmi símareiturinn í grafarvogi: Alls Ekki fyrir fólk, sem við þurfum að redda þjónustu eins og skóla eða elliheimili. Má ekki, það kostar pening!

Um leið að þið finnið fólk á listann sem hefur sýn og hvöt til að vinna fyrir hinn venjulega íslending, þá munið þið finna að fólk mun aftur láta sér detta í hug að kjósa ykkur.

Held það detti engum með fullu viti að kjósa ykkur í dag, lyddur sem fólkið sér að er ekki að vinna mikið fyrir það, hvað þá að þið gerið neitt fyrir almenning og almenningur sér alls ekki að þið reynið að gera neitt fyrir fólkið! 

Kolbeinn Pálsson, 22.4.2017 kl. 21:28

4 Smámynd: Áslaug Friðriksdóttir

Sundabraut er komin aftur á dagskrá, alla vega hefur tillaga okkar um hana verið samþykkt. Þó má nefna að það vill brenna við að samþykktar tillögur okkar vilji oft týnast hjá meirihlutanum. Verið er að semja um uppbyggingu á Reykjavíkurflugvelli samkvæmt Jóni Gunnarssyni sem nú fer fyrir samningum um flugvallarmálið við borgarstjóra. Allt kjörtímabilið hefur sleðahátturinn í uppbyggingarmálum í húsnæðismálum verið gagnrýndur. Vísa þessu lydduháttarkommenti þínu til föðurhúsanna, tek ekki sterkar til orða þó mig dauðlangi (því mamma gæti lesið þetta). Vel hefur verið unnið við að veita núverandi meirihluta aðhald og benda á það sem betur má fara. Tillögur okkar snúa nákvæmlega allar að því að bæta þjónustu fyrir almenning og forgangsraða í þágu grunnþjónustu. 

Áslaug Friðriksdóttir, 22.4.2017 kl. 23:17

5 Smámynd: Kolbeinn Pálsson

Þið ættuð að láta fólk sjá að þið séuð að vinna ì þessu að alvöru.

Sundabrautin fer ekki ì framkvæmd vegna kostnaðar ef hagkvæmasti valkosturinn verður útilokaður eins og Bergþórusonurinn stefnir að.

Þið hafið ekki barist svo eftir sé tekið um Flugvöllinn eða Sundabrautin. Ef þið viljið að fólk kjósi ykkur þá er ekki seinna vænna en að byrja baráttuna. Davìð Oddson og minn gamli reikningskennari pabbi þinn geta vafalaust gefið góð ráð ef þið viljið hlusta.

Kolbeinn Pálsson, 23.4.2017 kl. 01:24

6 Smámynd: Jónatan Karlsson

Vel mælt – Kolbeinn.

Hún síðuhafi hefði víst betur heima setið en að hætta sér fram á ritvöllinn með máttleysislegar aðfinnslur og fá svona líka á baukinn, eins og hún reyndar verðskuldar.

Ekki batnar það nú heldur hjá stelpu skjátunni við að rembast við að malda í móinn.

Jónatan Karlsson, 23.4.2017 kl. 13:42

7 Smámynd: Áslaug Friðriksdóttir

Varla getur maður látið þetta liggja þarna án athugasemda.

Áslaug Friðriksdóttir, 23.4.2017 kl. 16:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband