Hvar er áherslan á breytingar?

Lítið hefur verið hlustað á áhyggjur okkar Sjálfstæðismanna í borginni um að þau þjónustukerfi sem borgin rekur þurfi að fara í gegnum talsverðar breytingar til að vera tilbúin til að takast á við breytingar á aldurssamsetningu og fjölda vinnandi fólks. Ef málunum er pakkað inn þýðir þetta að fást verður við að mæta því hvernig bjóða má upp á fullnægjandi þjónustu fyrir fleiri án þess að meiri tekjur fylgi. Við höfum lagt áherslu á að innleiða tækninýjungar í velferðarþjónustuna við lítinn hljómgrunn. Við lögðum til strax í upphafi kjörtímabils að árið 2015 yrði 40 milljónum veitt í að skipuleggja slíkt breytingarferli í velferðarþjónustunni. Sú tillaga var felld. Í dag skilst mér að hálft stöðugildi (af um 7 þúsund) sinni innleiðingu velferðartækni hjá Reykjavíkurborg. Sem sagt engin áhersla lögð á þessi mál.

Ég var rétt í þessu að glugga í skýrslu sem gefin er út af Brussel skrifstofu sambands íslenskra sveitarfélaga og tekur á helstu málum ESB og EFTA árið 2017. Óháð því hvað mér finnst um rekstur þeirrar skrifstofu þá er þetta ágætis samantekt. Finn þarna samhljóm við stefnu okkar Sjálfstæðismanna í borginni hvað velferðarmálin varðar og einmitt þau mál sem of lítil áhersla er lögð á. Svo er þarna fleira áhugavert sem ég deili með ykkur svona á þessum fyrsta degi sumars :-)

Þetta er sem sagt samantekt um framtíð Evrópu:

"Evrópuþingið rekur hugveitu til að greina framtíðaráskoranir og helstu mál á döfinni. Meðalaldur hækkar stöðugt um allan heim og ef ekkert er að gert mun þessi þróun grafa undan velferðarkerfum eins og við þekkjum þau í dag og fólk mun þurfa að vinna talsvert lengur fram eftir aldri en nú. Meðalaldur í Evrópu 2030 verður 44 ár og sá hæsti í öllum heimsálfum. Meðalaldur á heimsvísu verður 33 ár. Hækka verður framlög til heilbrigðiskerfa umtalsvert og viðskiptamódel munu gerbreytast. Innflytjendamál verða áfram ofarlega á döfinni; vegna skorts á vinnuafli vegna lágrar fæðingartíðni, vegna aukinnar misskiptingar og vopnaðra átaka og jafnvel vatnsskorts. Tækninýjungar munu umbreyta heiminum á öllum sviðum; t.d. fjölmiðlum, lýðræðismálum og heilbrigðisþjónustu, vélmenni munu vinna sífellt fleiri störf sem nú er sinnt af fólki og þorri mannkyns mun búa í þéttbýli í framtíðinni. Þá er uppgangur lýðskrumara og þjóðernissinna einnig áhyggjuefni. ESB telur brýnt að móta langtímastefnu til að bregðast við ofangreindum áskorunum."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Áslaug, þið þurfið að taka ykkur á í borginni. Ég man ekki eftir jafnmiklum sóðaskap um allar götur og grundir, umferðartafir alla virka daga og skattpíning aldrei meiri. Ótal margt annað kemur upp í hugann, sem verður tíundað síðar.

Það er ömurlegt að upplifa svona eymd í stjórn borgarinnar.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 20.4.2017 kl. 19:12

2 Smámynd: Snæbjörn Björnsson Birnir

"ef ekkert er að gert mun þessi þróun grafa undan velferðarkerfum eins og við þekkjum þau í dag" Er þetta brandari? Hverjir eru að grafa undan velferðarkerfinu, ef ekki einmitt þið í Sjálfstæðisflokknum?

Snæbjörn Björnsson Birnir, 21.4.2017 kl. 02:05

3 Smámynd: Áslaug Friðriksdóttir

Já borgin þarf að taka sig á Heimir. Með núverandi meirihluta mun lítið gerast í þá áttina, við í minnihlutanum komum litlu að.

Snæbjörn, Sjálfstæðisflokkurinn er síst að grafa undan velferðarkerfinu heldur einmitt að styrkja það og gera það betra fyrir fólk. Það er óþarfi að staðna með ómögulega þjónustu af því hvergi má velta við steini í átt að betri þjónustu. Þetta hafa önnur lönd gert. Af hverju ætti Ísland ekki að feta sömu leið. Að sjálfsögðu á að fara varlega í það eins og breytingar á allri grunnþjónustu, þess vegna þarf að gera ráð fyrir þróun á löngum tíma. Nýsköpun hér er lykilatriði og hana þarf að virkja. Heilbrigðisstarfsfólk og fólk í velferðarþjónustu á að fá að nýta hugvit sitt og þekkingu í þágu almennings. Til þess að slíkt gerist sem hraðast þarf rekstrarumhverfi sem hvetur til breytinga og nýsköpunar. Ef aldrei má hreyfa við neinu staðnar þjónustan og ekki verður eftirsóknarvert að vinna störfin. 

Áslaug Friðriksdóttir, 21.4.2017 kl. 06:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband