Ruslið í Reykjavík

Meirihlutinn í Reykjavík er lítið fyrir að gæta hagsmuna borgarbúa. Tekjur borgarinnar hækka gríðarlega í gegnum útsvar og fasteignagjöld en meirihlutinn sér enga ástæðu til að reyna á sig í að leyfa borgarbúum að njóta þess.

Hér er ein staðfestingin af mörgum.

Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem ekki hefur boðið út sorphirðu frá heimilum. Augljóst er að mögulegur ávinningur borgarinnar af því að nýta samkeppnisútboð er mikill.

Þetta og fleira áhugavert segir í bréfi til okkar borgarfulltrúa frá Íslenska gámafélaginu sem meirihlutinn í Reykjavík heldur úti í kuldanum ásamt öðrum þeim sem hugsanlega myndu í bjóða í sorphirðuna í Reykjavík gæfist færi á því. Þetta hefur margoft verið lagt til af fulltrúum Sjálfstæðisflokksins en viðbrögðin meirihlutans engin.

"Taflan sýnir fjórar mismunandi útfærslur á sorpgjöldum fyrir Reykjavík. Í þremur tilvikum reyndust sorpgjöld í borginni vera á bilinu 30% til 95% hærri en í hinum sveitarfélögunum. Í einu tilviki, þar sem miðað er við að heimili sé með minni gráa tunnu og sleppi blárri endurvinnslutunnu, reyndist gjaldið vera 4% lægra en hjá hinum sveitarfélögunum." segir með myndinni, í ofangreindu bréfi.

 

ruslið í reykjavík

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni G. P. Hjarðar

Já, er ÍG ekki ágætlega stætt fyrirtæki þrátt fyrir að muni einungis 4% á útboðum hjá þeim og Marteini Mosdal hjá borginni? 

Bjarni G. P. Hjarðar, 14.2.2017 kl. 22:56

2 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Er ekki fyrirsögnin á greininni

lýsingin á meirihlutanum í Rvík..?cool

Sigurður Kristján Hjaltested, 15.2.2017 kl. 09:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband