Með bundið fyrir augu

Líklegt er að langtímaatvinnuleysi meðal ungs fólks skjóti rótum hér á landi ef ekki tekst að snúa vörn í sókn. Loforð um störf hafa verið svikin. Biðin eftir fleiri störfum er löng og safnast hefur upp gríðarlegur velferðarvandi. Háalvarlegt er hvernig ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms hefur ákveðið að breiða yfir þennan vanda.

Að horfast ekki í augu við vandann er vont
Ríkisstjórnin hefur ítrekað haldið því fram að hér sé atvinnuleysi komið niður fyrir sársaukamörk. Því er haldið fram að allt sé að komast í eðlilegt horf enda sýni tölur að atvinnulausum fækki. Þegar nánar er að gáð er þetta alrangt því að eftir að atvinnulausir hverfa af skrá Vinnumálastofnunar fara þeir yfir á fjárhagsaðstoð sveitarfélaga og eru jafn atvinnulausir eftir sem áður. Þetta dregur ekki úr atvinnuleysi eins og ríkisstjórnin lætur í veðri vaka.

Að leyfa honum að magnast er verra
 Þrátt fyrir ábendingar frá sveitarstjórnarmönnum, forystumönnum Sambands íslenskra sveitarfélaga, aðilum vinnumarkaðarins og fleirum hafa stjórnvöld ekki brugðist við vandanum. Félagsþjónusta sveitarfélaga er ekki vinnumiðlun samkvæmt lögum. Vinnumiðlun er verkefni ríkisins. Þeim sem þurfa á fjárhagsaðstoð að halda hefur fjölgað gríðarlega. Ungu fólki langmest. Bæði þeim sem hafa ekki lengur rétt til bóta og eins ungu fólki sem aldrei hefur átt rétt á þeim því það finnur ekki starf að loknu námi eða hefur aldrei fengið tækifæri til að reyna sig á vinnumarkaði. Ríkissstjórnin heldur áfram feluleiknum og bendir á að tölur Vinnumálastofnunar sýni og sanni að dregið hafi úr atvinnuleysi.

Að taka ekki nauðsynlegar ákvarðanir er verst
Í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi er ekki tekið á þessum vanda. Horft er framhjá honum. Þar er gert er ráð fyrir minni kostnaði ríkisins vegna atvinnuleysis en verið hefur. Hugmyndir um fjölgun starfa eru óraunhæfar. Í raun er líklegt að störfum fækki vegna aukinna skatta og álagna sem enn á að auka. En hvers er líka hægt að vænta af þeim sem ganga með bundið fyrir augu?

 

Grein birtist í Morgunblaðinu laugardaginn 9. nóvember 2012 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórir Kjartansson

Áslaug, ef grannt er skoðað er minna en ekkert atvinnuleysi á Íslandi.  Hér eru þúsundir útlendinga að vinna störfin sem fínu, hámenntuðu íslendingarnir þykjast of góðir til að vinna.  Það er ekkert sjálfgefið að það sé endalaus eftirspurn eftir viðskiptalögfræðingum, náttúrufræðingum, stjórnmálafræðingum og svo mætti lengi telja. Á meðan vantar menntað fólk í verk og tæknigreinar.  Svo er  líka sá möguleiki að þetta hámenntaða fólk gæti skapað sér störf sjálft en ætlast  ekki alltaf til að ríkið búi þau til.  

Þórir Kjartansson, 12.11.2012 kl. 23:06

2 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Þórir - svar þitt er sennilega yfirgripsmesta vanþekking sem ég hef barið augum. Þú ert á sama róli og Jóhanna Sigurðardóttir sem hefur lofað um 20000 störfum frá því að Helferðarstjórnin tók við en gleymir að geta þess að þau störf skapist í Noregi. Það er kanski það land sem þú vísar til og ert kanski staddur í.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 13.11.2012 kl. 12:12

3 Smámynd: Þórir Kjartansson

Datt til hugar að þetta kæmi við kaunin á einhverjum.   

Þórir Kjartansson, 13.11.2012 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband